Síðastliðinn föstudag útskrifaði Símenntun Háskólans á Akureyri föngulegan hóp nemenda sem lagt hafa stund á tveggja missera nám í svæðisleiðsögn á Norðurlandi á vegum Símenntunar og Leiðsöguskólans.
Markaðsstofa Norðurlands fagnar þessari góðu viðbót við flóru leiðsögumanna á Norðurlandi og óskar þeim til hamingju með árangurinn.