Stóðréttir - Víðidalstungurétt

02.10.2010 - 02.10.2010
Sjáið fyrir ykkur frjáls og stolt hrossin þegar þau koma þeysandi niður úr fjöllunum þar sem þau hafa verið á sumarbeit. Nú eru þau á leið til byggða. Hryssur með folöld sín og unghestarnir eru ekki alveg reiðubúin að gefa frelsi sumarsins upp á bátinn, nú þegar hausta fer. Ekki spillir heldur fyrir stórbrotin náttúran, umhverfi Víðidalsár, haustlitirnir og víðátta fjallanna. Stóðréttir tíðkast núorðið aðeins á Norðurlandi.

Stóðréttin í Víðidal er haldin laugardaginn 2. október.