Í Húnavatnssýslu og Skagafirði er gestum sérstaklega boðið að taka þátt í göngum og réttum.
Hvergi á landinu koma eins mörg hross saman í stóðréttum eins og á Norðurlandi vestra. Helstu stóðréttirnar eru Laufskálarét í Skagafirði, Víðidalstungurétt í Húnaþingi vestra og Skrapatungurétt í Austur Húnavatnssýslu. Helstu fjárréttir má nefna Hamarsrétt á Vatnsnesi sem er einkar falleg og sérstök rétt við ströndina, Miðfjarðarrétt í Húnaþingi vestra, Auðkúlurétt og Undirfellsrétt í Austur Húnavatnssýslu og Staðarrétt og Skarðarétt í Skagafirði.

Réttir í Húnaþingi vestra 2010
Fjárréttir:
4. sept. Miðfjarðarrétt
4. sept. Hrútatungurétt
10. sept. Valdarásrétt í Fitjárdal
11. sept. Víðidalstungurétt
11. sept. Þverárrétt í Vesturhópi
11. sept. Hamarsrétt á Vatnsnesi
Stóðréttir:
4. sept. Miðfjarðarrétt – snemma morguns
25. sept. Þverárrétt í Vesturhópi
1. okt. Víðidalur – stóðsmölun. Gestum boðið í smalamennsku.
2. okt. Víðidalstungurétt – hestasýningar og skemmtun
Réttir í Austur- Húnavatnssýslu 2010
Blönduósbær:
11.-12. sept. Skrapatungurétt - fjárréttir
19.sept. Skrapatungurétt – stóðréttir. Gestum boðið í smalamennsku.
Húnavatnshreppur:
Fjárréttir:
4. sept. Rugludalsrétt
4. sept. Auðkúlurétt
11. sept Stafnsrétt
12.sept. Hlíðarrétt
10.-11. sept. Undirfellsrétt

Stóðréttir:
20. sept. Hlíðarrétt
25. sept. Auðkúlurétt
25. sept. Undirfellsrétt
Skagabyggð:
11. sept. Fossárrétt – fjárréttir
Réttir í Skagafirði 2010
Fjárréttir:
4. sept. Deildardalsrétt
4. sept. Árhólarétt – Unadalur
10. sept. Stíflurétt í Fljótum
11. sept. Stafnsrétt
11. sept. Sauðárkróksrétt
11. sept. Skarðarétt
11. sept. Holtsrétt í Fljótum
11. sept. Flókadalsrétt í Fljótum
11. sept. Selárrétt á Skaga
12. sept. Laufskálarétt
12. sept. Staðarrétt
13. sept. Silfrastaðarétt
18. sept. Hofsrétt
19. sept. Hlíðarrétt
19. sept. Mælifellsrétt
Stóðréttir:
12. sept. Silfrastaðarétt
18. sept. Staðarrétt
18. sept. Skarðarétt
24. sept. Árhólarétt – Unadalur
24. sept. Deildardalsrétt
25. sept. Laufskálarétt
2. okt. Flókadalsrétt í Fljótum