Á Langanesi
681, Þórshöfn

Á  klettadranginum Stóra-Karli undir Skoruvíkurbjargi er annað mesta súluvarp landsins. Súlan er einkar tignarlegur fugl og stundum nefnd drottning Atlantshafsins . Hrífandi er að liggja á bjargbrúninni og virða fyrir sér súluvarpið þar sem súlan svífur um í óendanleika himins og hafs. Í Stóra-Karli hafa líka búsetu aðrir bjargfuglar svo sem langvía, rita, fýll og fleiri tegundir.