Skálar á Langanesi- þorp sem einu sinni var.Í þorpinu á Skálum á Langanesi er að finna minjar um líf sem einu sinni var. Hér stóð blómlegt þorp þar sem íbúarnir byggðu afkomu sína á útgerð. Breyttar aðstæður í útgerð og samgöngum, tundurduflasprengingar og ýmislegt fleira varð til þess að á sjötta áratug síðustu aldar lagðist byggðin hér af.Inn í sögu þorpsins fléttast áhrif hlunninda á búsetu, síðari heimsstyrjöldin, breytingar á samgöngum, örlög einstakra fjölskyldna og margt fleira.
Myndarlegur bæklingur um Skála fæst í upplýsingamiðstöð á Þórshöfn. Hann er til þess ætlaður að fólk geti gengið með hann um þorpið, skoðað þær minjar sem hér eru og fræðst um leið. Margar rústanna eru merktar með númeri og nafni.