Drangey rís sæbrött fyrir miðjum Skagafirði. Frá henni er víðsýni mikið um byggðir fjarðarins. Hún er að mestu úr móbergi, hrikalegt hamravígi. Er hennar fyrst getið í Grettis sögu en þar hafðist útlaginn við seinustu ár sín ásamt bróður sínum Illuga og þrælnum Glaumi og þar var hann veginn, helsjúkur, í skála sínum af Þorbirni öngli og mönnum hans. Það mun hafa verið nær veturnóttum árið 1031.Fuglalíf er fjölbreytt í Drangey þótt mest beri þar á svartfuglategundum: stuttnefju, langvíu, álku og lunda. Stuttnefjan og langvían verpa í bjarginu sjálfu en álkan einkum í urðum undir því. Lundinn grefur sér aftur á móti holur á brúnunum. Auk þess verpa rita og fýll í björgunum og hrafn og valur eiga sér þar einnig griðland.
Daglegar ferðir eru í Drangey frá Reykjum frá 1. júní - 15. ágúst kl. 10:00 ef veður leyfir og lámarks fjöldi í ferð eru 5 manns. Aðrar ferðir á öðrum tímum eru eftir samkomulagi.
Að Reykjum er tvær steinlaugar hlaðnar ofaná heitum uppsprettum. Önnur laugin heitir Grettislaug og hin nefnist Jarlslaug. Að Reykjum er boðið upp á gistingu á gistiheimili og á tjaldsvæði.