Á Skagaströnd er ekki aðeins fögur og gróðursæl náttúran yfir og allt um kring og menningin sérstök, blómleg og lifandi - það er svo miklu meira.
Tónlistin hljómar frá útvarpi kántrýkóngsins, hins eina sanna Hallbjörns Hjartarsonar, seiðandi matarilmurinn leggur frá Kántrýbæ og listamenn sinna störfum sínum í Nes-listamiðstöðinnu.
Spákonufellshöfði er vinsælt útivistarsvæði. Þar hafa gönguleiðir verið merktar og fræðsluskilti um fugla og gróður sett upp. Spákonufell er virðulegt fjall fyrir ofan bæinn og gönguleiðin upp er stikuð.
Á Skagaströnd er jafnframt góður golfvöllur, fallegt gjaldfrjálst tjaldsvæði með glæsilegu þjónustuhúsi. Sundlaugin er lítil en notarleg og eftir góða gönguferð er yndælt að láta líða úr sér í heita pottinum eða leika sér með börnunum í lauginni.