580
1300
Norðurland
www.fjallabyggd.is

Fyrir ferðamenn og útivistarfólk er margt skemmtilegt að skoða og gera á Siglufirði.

Á veturna er staðurinn skíðaparadís og draumur útivistarmannsins. Hægt er að fara á svigskíði, gönguskíði, skauta eða þeytast um á snjósleða.

Á sumrin eru það fjöllin, vatnið og svört sandfjaran sem heilla. Í stórbrotnu landslagi Siglufjarðar má finna fjölbreyttar gönguleiðir um fjöll og dali og njóta einstaks útsýnis í kyrrð og ró.

Afþreyingarmöguleikar eru nánast ótæmandi. Á Siglufirði er boðið upp á sjóstöng og auk þess er hægt að veiða á stöng í Hólsá. Ekki gleyma því að hægt er að veiða á bryggjum bæjarins.

Miðnætursiglingar og ferðir yfir heimskautsbaug eru einnig í boði. Möguleiki er að skipuleggja sérstakar ferðir fyrir þá sem þess óska, svo sem göngu- og siglingaferð þar sem gengið yrði út í Héðinsfjörð og siglt heim.  Á Siglufirði er 9 holu golfvöllur og sundlaug.

Þar er Síldarminjasafnið, stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins og í Evrópu allri. Í þremur ólíkum húsum er hægt að kynna sér síldveiðar og vinnslu á “silfri hafsins”. Síldarminjasafnið hlaut Evrópuverðlaun safna, Michletti verðlaunin, árið 2004. Á Siglufirði er einnig Þjóðlagasetrið.