Þorpið Laugarbakki er austanmegin Miðfjarðarár, í Húnaþingi vestra, rétt við hringveginn. Fyrsta húsið á Laugarbakka var byggt 1933. Árið 1970 var reistur stór heimavistarskóli í þorpinu, þar sem nú er rekið Edduhótel á sumrin.
Á Laugarbakka er verslun, sundlaug (sem breytt hefur verið í notalega heita potta) og félagsheimili, sem að sumarlagi er vinsæll vettvangur fyrir fjölskyldusamkomur. Frá Laugarbakka til Hvammstanga eru aðeins 7 km.