Hjalteyri er smáþorp á vesturströnd Eyjafjarðar. Þar var ein af aðalstöðvum síldveiða snemma á 20. öldinni. Á Hjalteyri er nú fiskiræktarstöð þar sem gerðar eru tilraunir með lúðuklak. Í gömlu síldarverksmiðjunni eru oft haldnar listsýningar á sumrin.