Akureyri iðar af mannlífi allan ársins hring. Í bænum búa um 17.200 manns og er hann sá langfjölmennasti utan höfuðborgarsvæðisins, miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland.
Akureyri er menningar- og skólabær sem byggir á traustum grunni. Þar starfa tvö af stærri sjávarútvegsfyrirtæki landsins og ferðaþjónusta skipar sífellt hærri sess.
Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins og bærinn sjálfur er vinsæll áningastaður um lengri eða skemmri tíma.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir fjölmarga hluti sem mælt er með að gestir skoði þegar þeir dvelja á Akureyri: