Engin mynd

Opnunartími

Allt árið
Veitingahús
Víðidalur
531, Hvammstangi
www.vidigerdi.is
451-2592

Veitingaskálinn Víðigerði í Húnavatnssýslu stendur þráðbeint við þjóðveginn. Meginstarfsemi okkar felst í veitingasölu og gistingu og við höfum opið allt árið. Á sumrin,  frá 1. apríl-15. október erum við með opið frá 9-23 alla daga og þá eru á boðstólum réttur dagsins, kótilettur, nautasteikur,fiskur, súpur, grænmetisréttir og grænmetisborgarar, auk skyndirétta.

Við höfum 8 tveggja manna herbergi, án eigin baðs en með aðgangi að sameiginlegu baðherbergi og salerni. Auk þess er vel útbúið eldhús, setustofa með sjónvarpi, bókum og tímaritum.

Hægt er fá veiðileyfi í Hópinu og í Bergá, sem er í Víðidalsgaflinum.
Hestaferðir í kringum Víðidalsfjallið eru í boði, 4-5 daga ferðir þar sem gist er allar nætur nema eina í Víðigerði. Hægt verður að kaupa einn og einn dag úr þessum ferðum. Í félagsheimilinu Víðigeri er góð aðstaða fyrir ættarmót og hópa af ýmsu tagi.