Sveitahótelið Sveinbjarnargerði er staðsett við þjóðveg nr.1 um 10 mínútna akstur frá Akureyri. Þar eru 39 tveggja manna herbergi og 5 eins manns - öll með baði. Á Sveitahótelinu eru tveir salir, Veislusalurinn sem tekur allt að 110 manns í sæti og Fundarsalurinn sem tekur allt að 40 manns í sæti því tilvalið fyrir hópa - t.d. starfsmannahópa að halda árshátíðar og litla jafnt sem stóra fundi. Arinn er í setustofu og borðsal. Þar er gott að slaka á eftir erilsaman dag og borða við arinneld eða njóta friðarins með góða bók. Útsýni út Eyjafjörð er einstakt og fjölbreytt afþreying í seilingarfjarlægð.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.