Engin mynd

Opnunartími

Allt árið
Veitingahús
Skipagata 14
600, Akureyri
www.strikid.is
462-7100

Strikið veitingahús býður upp á fjölbreytilegan og vandaðan matseðil, góðan mat og góða þjónustu. Saman gerir þetta heimsókn á veitingahúsið Strikið á Akureyri að upplifun sem þú nýtur og geymir í minningunni. Útiaðstaðan okkar gerir þessa upplifun enn eftirminnilegri á góðum sumardegi.
Strikið er á fimmtu (efstu) hæð í Skipagötu 14 á Akureyri þar sem er frábært útsýni yfir Eyjafjörðinn og Akureyri. Salir Striksins eru tveir og rúma 60 og 80 manns en því til viðbótar er pláss fyrir allt að 100 manns úti undir beru lofti.
Áherslan er á fjölbreytileika í matargerð og úrval rétta á matseðlinum. Í hádeginu alla daga vikunnar bjóðum við upp á rétt dagsins ásamt súpu á aðeins 1.500 krónur.

Strikið er opið frá klukkan 11.30 alla daga.