Opnunartími

Allt árið
Gistiheimili, Svefnpokagisting, Veitingahús
Kelduhverfi
671, Kópasker
465-2280
821-1388
11
36

Ferðaþjónustan Skúlagarði - gisithús og veitingastaður.

Skúlagarður var byggður á árunum 1953-1959 sem heimavistarskóli og félagsheimili. Á síðari árum hefur húsinu verið breytt í notalegt gistihús.
Gisting er í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum, auk svefnpokapláss og eldunaraðstöðu.  Í veitingasalnum er boðið uppá kvöldverð, morgunverð og léttan hádegisverð, auk drykkja. Lögð er áhersla á einfaldleika og notalegt viðmót.
Skúlagarður er í miðju Kelduhverfi í 50 km fjarlægð frá Húsavík og 140 km. frá Akureyri. Margar af helstu náttúruperlum Íslands, svo sem  Ásbyrgi, Hljóðaklettar og Dettifoss eru í næsta nágrenni. Gönguleiðir í Kelduhverfi og nágrenni eru margar og fjölbreyttar og náttúrufegurð mikil. Við Ásbyrgi er 9 holu golfvöllur.  Örstutt frá Skúlagarði er Litlá, vinsæl stangveiðá og ein af bestu silungsám á Norðulandi. Skúlagarður er tilvalinn staður fyrir stóra sem smærri hópa, ættarmót, fundi og ráðstefnur.
Tjaldsvæði er einnig í Skúlagarði með eldhúsaðstöðu, snyrtingu og sturtu.
Húsráðandi er Axel J. Yngvason
Skúlagarður er opinn allan ársins hring, mánuðina september til maí þarf að bóka með fyrirvara

Upplýsingar og pantanir í síma 465-2280,  Fax: 465-2279 eða á  netfang: skulagardur@simnet.is

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.