Sel Hótel Mývatn hefur 35 herbergi og eru þau öll með sér baðherbergi. Á hverju herbergi er sími, útvarp og sjónvarp. Einnig er möguleiki á háhraða tölvutengingu inn á herbergin. Allar innréttingar á herbergjunum eru ú gegnheilum hahonívið og er leitast við að skapa notalegt viðmót gagnvart gestum hótelsins. Mikilfenglegt útsýni er frá herbergjunum, yfir Skútustaðagíga og út á Mývatn.
Hótelið er vel búið til að taka á móti allskonar fyrirtækja- og skemmtiferðum, bæði varðandi aðbúnað á hótelinu og einnig aðra afþreyingu á Mývatnssvæðinu. Ennfremur er hótelið einstaklega vel staðsett til að sinna ráðstefnum og fundum fyrir stærri sem smærri hópa.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.