Ólafshús er veitingastaður með fjölbreyttan matseðil, og er staðsettur í hjarta Sauðárkróks.Ólafshús var reist árið 1897 af Ólafi Jónssyni (1857-1933) frá Dæli. Ólafur var söðlasmiður og hafði söðlaverkstæði í húsinu. Árið 1898 er fyrst getið um íbúa í húsinu í sóknarmanntaliVeitingahúsið Ólafshús á Sauðárkróki býður uppá fjölbreyttan matseðil þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Á Ólafshúsi er meðal annars boðið upp á pizzur, steikur, fiskrétti, pastarétti, ýmsa grillrétti rétti ásamt úrvali forrétta og eftirrétta. Lögð er áhersla á að bjóða upp á mat úr héraði bæði í sérréttaseðli sem og í réttum dagsins og erum við stolt af því að bjóða viðskiptavinum okkar að kíkja í Matarkistu Skagafjarðar. Aðaláherslan í eldhúsi Ólafshúss er lögð á ferkt fyrsta flokks hráefni. Ólafshús er staður sem hentar við öll tækifæri og er ætlað að þjóna fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Ólafshús tekur um 60 manns í sæti. Á efri hæð Ólafshúss undir súð er huggulegt stofa sem hentar vel fyrir litla hópa eða fundi. Einnig hefur Ólafshús yfir að ráða að veislusal á Mælifelli sem tekur allt að 120 manns í sæti þar er einnig góð fundaraðstaða.