Lundur er í Birkiskógi við þjóðbraut. Í næsta nágrenni eru merkir áningastaðir, svo sem Vatnajökulsþjóðgarður, Hljóðaklettar, Dettifoss, Rauðinúpur og Hraunhafnartangi. Allt sannkallaðar náttúruperlur. Ásbyrgi í 5 mínútna fjarlægð. Frábærar vel merktar gönguleiðir í nágrenninu. Ókeypis veiði í fallegum vötnum á sléttunni sem geymir líka stórbrotið fuglalíf. Falleg strandlengjan með rekaviði er einnig ómissandi. Stutt í hvalaskoðun og ferðir yfir heimskautsbaug.Ókeypis í sundlaugina og pottinn fyrir alla okkar næturgesti.Verið velkomin að Lundi í Öxarfirði. Við keppumst við að gera heimsókn þína ógleymanlega.
Við keppumst við að gera heimsókn þína ógleymanlega.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.