Engin mynd

Opnunartími

Allt árið
Veitingahús
Hólanesvegur 11
545, Skagaströnd
www.kantry.is
452-2829
869-1709

Kántrýbær er eini kántrý-vestern veitingastaðurinn á Íslandi. Kántrýbær er á Skagaströnd sem er þéttbýliskjarni við austanverðan Húnaflóa rétt um 20 km frá þjóðvegi númer eitt.

Kántrýbær er ekki aðeins veitingarstaður heldur einnig sögusafn og útvarpsstöð þar sem spiluð er kántrýtónlist og þá helst frá mið- og suðurríkjum Bandarríkjanna.

Á veitingastaðum í Kántrýbæ er í boði fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eithvað við sitt hæfi. Auk þessa býður Kántrýbær upp á hvers kyns mat og þjónustu fyrir jafnt litla sem stóra hópa fólks, allt að 100 manns.

Kántrýbær hefur náð að skapa sér mjög sérstakan sess í íslenskri menningu og er löngu orðið landsfrægt og hefur hróður þess borist um víða veröld. Á hverju ári koma milli 15.000 og 20.000 gestir í kántrýbæ.
www.kantry.is