Aðfararnótt 18. janúar 2008 brann Kaffi Krókur, Aðalgötu 16 á Sauðárkróki og er talið ónýtt. Húsið er eitt af merkustu húsum Sauðárkróks byggt á árunum 1887-1890. Húsið reisti Vigfús Guðmundsson Melsteð en seldi nýbyggt til Jóhannesar Ólafssonar sýslumanns, en hann flutti til Sauðárkróks frá Gili í Borgarsveit. Meðan húsið var í smíðum var það notað sem geymsla, einnig til leiksýninga.
Nú hefur húsið verið endurbyggt og í því er rekin öflug veitingastarfsemi, á vegum sömu aðila og reka veitingastaðinn Ólafshús.