Á Gauksmýri er rekin ferðaþjónusta með áherslu á náttúru- og hestatengda ferðaþjónustu. Þar er boðið upp á uppbúin rúm í eins og tveggja manna herbergjum með eða án baðs.
Herbergin með baðherbergjunum eru 18 talsins og voru tekin í notkun sumarið 2006. Þau eru á annarri hæð gistihússins. Herbergin án baðs eru 9 og eru þau með handlaug og með sameiginlegu baðherbergi. Auk þess er gisting í eldra húsnæði nokkrum metrum frá gistihúsinu.
Gistiaðstaðan er gæðavottuð samkvæmt stöðlum Ferðaþjónustu bænda. Heimilislegar og þægilegar setustofur með sjónvarpi og myndbandstæki. Notalegt umhverfi þar sem gestum gefst tækifæri til að glugga í fugla- og hestabækur og aðrar náttúrubækur heimilisins. Þráðlaus aðgangur að interneti.
Maturinn á Gauksmýri er annálaður fyrir bragðgæði og hollustu. Lögð er áhersla á að bjóða gestum upp á sem hreinasta hollustu afurð. Gróðurhús er á staðnum og á sumrin er reynt að bjóða gestum sem mest af heimaræktuðu grænmeti. Mest allt brauð er heimabakað.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.