Opnunartími

01/02 - 30/09

Þjónusta

Hótel, Veitingahús
Ketilsbraut 22
640, Húsavík
www.fosshotel.is
464-1220
464-2161
70
140

Fosshótel Húsavík er vinalegt og vel búið, notalegt 3ja stjörnu ferðamannahótel. Hótelið er í hjarta Húsavíkur og í göngufæri við höfnina. Á hótelinu eru 70 herbergi með eftirfarandi tegundum herbergja: 34 herbergi með tveimur einstaklingsrúmum eða einu hjónarúmi. 10 herbergi með sjávarsýn. 26 úrvals herbergi með king size rúmum. Á hótelinu er rekinn veitingastaður og bar. Einnig er móttakan opin allan sólarhringinn og við hana er hægt að fá aðgang að interneti. Í húsinu eru sérhönnuð herbergi með góðu aðgengi fyrir fatlaða og einnig er lyfta. 

Innréttingar hótelsins eru byggðar á hvalaþema sem er í formi mynda, málverka, skúlptúra og stóru safni hvalafrímerkja. Barinn nefnist Moby Dick Pub og byggist á hinni frægu sögu um hvíta hvalinn Moby Dick. Þar er að finna sér hönnuð húsgögn, svo sem hvala-barstóla og árabáta-borð. Moby Dick Pub er vinsæll til kokteilboða og einnig er boðið upp á mismunandi tónlistarþemakvöld.

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.