Engin mynd

Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

Gistiheimili, Svefnpokagisting, Bændagisting, Sumarhús, Tjaldsvæði, Veitingahús
Víðidalur
531, Hvammstangi
www.daeli.is
451-2566
451-2866
10
46
7

Ferðaþjónustan Dæli í Víðidal hefur verið rekin frá árinu 1988.  Fjölbreytt aðstaða og afþreying, bæði fyrir einstaklinga og hópa, 10 herbergi með baði þar af 2 fjölskylduherbergi og 1 með aðgengi fyrir fatlaða. "Gamli bærinn" herbergi (umbúin rúm) án  baðs, m/handlaug, svefnpokapláss í smáhýsum sem eru 6 talsins og er hvert hús 12 m² að stærð. Aðstöðuhús með sturtu- og snyrtiaðstöðu.Þar er einnig matsalur með eldunaraðstöðu. Tjaldstæði.

Í Dæli er rekin veitingasala með bar fyrir gesti og gangandi, hópa jafnt sem einstaklinga. Okkar rómaða kaffihlaðborð með heimabökuðu íslensku bakkelsi nýtur líka sívaxandi vinsælda. Við gerum tilboð í hópa, bæði í mat og kaffi, svo hafið endilega samband og fáið frekari upplýsingar!

 

Vinsamlegast hafið samand vegna verðlista og bókana.