Brimnes hótel og bústaðir er staðsett í Ólafsfirði í Fjallabyggð. Við sjóinn, en um leið mitt í jökulskornum Tröllaskaganum. 60 kílómetrum norðan við Akureyri og 18 kílómetrum norðan við Dalvík. Átta finnskir bústaðir standa við norðurenda Ólafsfjarðarvatns. Heitir pottar eru á veröndum þeirra allra og í fjórum stærstu er eldunaraðstaða.Hótelið stendur nokkrum metrum norðan við bjálkahúsin og þar er boðið upp á gistingu í 11 tveggjamanna herbergjum með baði, fundaaðstöðu, setustofu, veitingasal, bar og háhraða nettengingu.
Það er nóg við að vera, bæði á staðnum og í næsta nágrenni. Verið velkomin!
Fuglaljósmyndakeppnin www.birdforamillion.com
Brimnes Veitingahús.Við sérhæfum okkur í norrænum mat og erum stolt af. Staðsetningin segir sitt. Hálendið við hafið; Tröllaskaginn og sjórinn. Þegar hópar eiga í hlut, bjóðum við upp á tveggja eða þriggja rétta máltíðir á mjög sanngjörnu verði, komum með uppástungur en förum að sjálfsögðu einnig að séróskum viðskiptavina.
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.