Opnunartími

Allt árið
Veitingahús
Hafnarstræti 92
600, Akureyri
www.bautinn.is
462-1818

Bautinn býður þig innilega velkominn í húsakynni sín. Bautinn er staðsettur í hjarta Akureyrar, á horni Hafnarstrætis og Kaupangsstræti, í einu elsta og fallegasta húsi bæjarins.
Staðurinn leggur ríka áherslu á góðan mat og hraða og líflega þjónustu á viðráðanlegu verði. Salatbar staðarins er löngu orðinn landsþekktur og fylgir hann ásamt súpu og brauði öllum aðalréttum.

Um árabil hefur Bautinn rekið umfangsmikla veisluþjónustu. Allt frá litlum veislum til mjög fjölmennra, um 1200 manna. Stærri veislur hafa oftast verið haldnar í íþróttahúsum og hefur Bautinn komið sér upp góðum búnaði til að gera þar glæsilega veislusali sem og í öðru stóru húsnæði.