- Um Norðurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Bookmark and Share

Hofsós

Vefsíða: www.hofsos.is, www.northwest.is
Íbúafjöldi: 180
Hofsós
Hofsós er lítið þorp á austurströnd Skagafjarðar. Áður fyrr var Hofsós helsti verslunarstaður í héraðinu og jafnframt einn elsti verslunarstaður á Íslandi. Talið er að verslun þar hafi hafist á 16. öld. Pakkhúsið, gamalt vörugeymsluhús frá tímum dönsku einokunarverslunarinnar, hefur verið endurgert í því sem næst upprunalegri mynd og er þar hluti af Byggðasafni Skagafjarðar. Einnig er á Hofsósi Vesturfarasafn sem tileinkað er fólksflutningum frá Íslandi til Norður-Ameríku.
Nánari upplýsingar: www.northwest.is. Íbúar um 180.

Hofsós
Get Adobe Flash player