- Um Norðurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Bookmark and Share

Þorp og staðir


Mannlíf og atvinnulíf á Norðurlandi er með ýmsu móti. Til sveita er stundaður búskapur en í bæjum skipta fiskveiðar, iðnaður, verslun og ýmis þjónusta mestu máli. Hver bær hefur sín sérkenni en öllum er sameiginlegt að taka vel á móti gestum. Auðvelt er að fá mat og gistingu og möguleikar til útivistar og afþreyingar eru alls staðar fyrir hendi.

Skoðunarferðir um bæina eru því bæði skemmtilegar og fræðandi. Akureyri er höfuðstaður Norðurlands og þaðan er hægt að fara í langar og stuttar ferðir. Stutt er austur til Húsavíkur og út Eyjafjörð til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar þar sem fólk býr inn á milli hárra fjalla. Einnig er upplagt að skreppa til Sauðárkróks, Blönduóss og Hvammstanga.

Hvarvetna er líf og fjör og fólk gerir sér glaðan dag. Sem dæmi má nefna að Akureyringar halda „Eina með öllu” á Akureyri, Fiskidagurinn mikli er á Dalvík, Berjadagar í Ólafsfirði, Þjóðlagahátíð á Siglufirði, Sæluvika í Skagafirði, Matur og menning á Blönduósi og Unglistahátíð á Hvammstanga. Siglingar út í Hrísey og Grímsey eru skemmtileg upplifun og nýtur fjölskylduhátíð Hríseyinga mikilla vinsælda.













Akureyri
Árskógssandur
Bakkafjörður
Blönduós


























Dalvík
Grenivík
Grímsey Island
Hauganes


























Hjalteyri
Hofsós
Hólar
Hrafnagil


























Hrísey
Húsavík
Hvammstangi
Kópasker


























Laugabakki
Laugar
Ólafsfjörður
Raufarhöfn


























Reykjahlíð
Sauðarkrókur
Siglufjörður
Skagaströnd


























Svalbarðseyri
Þorshöfn
Varmahlíð















 











Get Adobe Flash player