- Um Norðurland
-Þjónustuleit
Skagafjörður og Siglufjörður
![]() |
![]() |
![]() |
Frá miðjum Skagafirði er Glóðafeykir í austri, Mælifells-hnjúkur gnæfir til himins í suðri en Tindastóll er norðvestan Sauðárkróks, svo nefnd séu nokkur þekkt fjöll.
Á leið til Siglufjarðar er ekið um Strákagöng sem gerð voru árið 1967 í gegnum fjallið Stráka og eru fyrstu jarðgöngin á Íslandi fyrir umferð bifreiða. Áður var farið um Siglufjarðarskarð sem er hrikalegur fjallvegur milli Fljóta og Siglufjarðar.
Ýmislegt áhugavert er að finna í náttúru Skagafjarðar. Á austanverðum Skaga eru Ketubjörg, þverhnípt sjávarbjörg, forn eldstöð sem sjórinn hefur sorfið inn að gígfyllingu og gefur góða mynd af innviðum eldstöðva. Eitt kunnasta kennileiti fjarðarins er Drangey, tæplega 200 metra há klettaeyja sem aðeins er kleif á einum stað. Þórðarhöfði við austanverðan fjörðinn setur einnig mikinn svip á umhverfið.
Back




