- Um Norðurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Bookmark and Share

Húnavatnssýslur


Vestur-Húnavatnssýsla liggur upp frá Húnaflóa en inn af honum ganga firðirnir Hrútafjörður, Miðfjörður og Húnafjörður. Milli Hrútafjarðar og Miðfjarðar er Heggstaðanes, en Vatnsnes milli Miðfjarðar og Hrútafjarðar. Upp af Húnafirði eru Vesturhóp og Víðidalur. Inn af Húnaflóa er allmikið láglendi en upp af því ganga nokkrir dalir. Vestast er Vatnsdalur, þá Svínadalur og Langidalur en í framhaldi af honum er Blöndudalur. Austast eru Laxárdalur og Svartárdalur. Sunnan dalanna taka við víðáttumikil heiðalönd allt inn til jökla. Gróður er víða mikill, einkum graslendi og mýrar.


Meðfram ströndinni eru nokkur stór vötn, t.d. Hópið og Húnavatn. Ár eru margar og Blanda er þeirra mest en þekktar eru einnig Laxá á Ásum, Svartá, Hrútafjarðará, Miðfjarðará, Víðidalsá og Vatnsdalsá. Lax er í þeim öllum og markar svæðinu sannarlega sérstöðu með tilliti til laxveiði að 7 laxveiðiár skulu renna til sjávar á tiltölulega litlu svæði.


Ýmislegt áhugavert er að finna í náttúru landshlutans. Á Vatnsnesi er fjölbreytilegt strandlandslag og fagurt útsýni til Stranda. Þar er eitt mesta sellátur á Norðurlandi. Má í því sambandi benda á að markvisst er unnið að uppbyggingu náttúrutengdrar ferðaþjónustu í tengslum við Selasetur Íslands á Hvammstanga. Selaskoðunarstaðir eru á Illugastöðum, Svalbarði og við Ósa. Við vestanverðan botn Húnafjarðar er Hvítserkur, brimsorfinn berggangur úr blágrýti um 15 metrar á hæð. Borgarvirki er ein af merkustu fornminjum landsins og er á milli Vesturhóps og Víðidals. Borgin er úr 10 til 15 metra háu stuðlabergi og ofan í hana er kringlótt dæld. Kolugljúfur í Víðidalsá eru tilkomumikil þar sem Kolufossar falla í þau. Vatnsdalshólar er sérstök hólaþyrping í mynni Vatnsdals en þar fór fram síðasta aftaka á Íslandi 1830. Kattarauga er hylur í Kornsá sem er friðlýst náttúruvætti en í honum eru tvær fljótandi smáeyjar.


Back
Get Adobe Flash player