- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Bookmark and Share

Beint flug milli Akureyrar og Vestmannaeyja

02. febrúar - 14. febrúar

Nú er boðið upp á frábæran valkost fyrir Norðlendinga í skammdeginu, því  helgina 12.-14. febrúar verður í fyrsta sinn beint áætlunarflug milli Vestmanneyja og Akureyrar, þ.e. fram og til baka báða dagana !

Nú er sérstakt tækifæri fyrir Norðlendinga að skreppa til ,,suðrænna eyja" og njóta þess að ganga á grænu grasi í febrúar, því Golfklúbbur Vestmannaeyja ætlar að standa fyrir "Suðurhafseyja open" golfmóti laugardaginn 13 febrúar. Sama kvöld verður haldið sérstakt Eyjakvöld á veitingastaðnum Volcano þar sem tónlistamenn úr Eyjum fara á kostum !
Í Vestmannaeyjum er svo  elsta og merkasta fiska- og náttúrugripasafn landsins, m.a. lifandi sjávardýr í 12 búrum.  Sérsýningin Pálsstofa er nú opinn í byggðasafninu, en sú sýning var opnuð í nóvember og er  tileinkað ferðum og heimildarmyndum Páls Steingrímssonar. Norðlendingar ættu að geta notið þess sérstaklega að heimsækja Eyjar á þessum árstíma enda margt að skoða og njóta.

Flugfélag Íslands hefur gefið sérstakt hópaverð í þetta tilraunaflug, rúmlega 18.000 krónur, fram og til baka !  Flugið er bókanlegt beint á netinu: www.flugfelag.is

Back
Get Adobe Flash player