Nánari upplýsingar um námskeiðið

MASTERMIND NORÐURSINS er 4 klst. sérhönnuð vinnustofa fyrir aðila í ferðaþjónustu á Norðurlandi sem vilja ná markmiðum sínum og áætlunum um viðskiptalegan árangur með því að bæði gefa og taka á móti stuðningi og hvatningu frá öðrum þátttakendum.
Markmið þjálfunarinnar er út frá markmiðum Air 66N um að styðja við aukið millilandaflug til Akureyrarflugvallar og gera Norðurland að eftirsóttum áfangastað allt árið um kring.

• Skapa sterkara og virkara tengslanet innan ferðaþjónustu Norðurlands
• Langtíma og skammtímamarkmið þátttakenda mæld, skoðuð og skráð
• Kynnast möguleikum og leikreglum Mastermind hópa
• Innsýn inn í möguleika á markaðssetningu inn á samfélagsmiðlum s.s. Facebook og Twitter
• Mastermind hópar stofnaðir (4-6 vikna skuldbinding)
• Innifalið inní þjálfunarstofu er endurkoma markþjálfa 4-6 vikum liðnum þar sem staðan og ákvörðun um áframhaldandi starf hópanna er tekin.

Vinnustofan er jafnframt fyrsti vinnufundur á vegum Flugklasans Air 66N sem rekinn er af Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi og markar upphafið af samstarfi hagmunaaðila.

Hugmyndin á bak við Mastermind?
“A group of two or more minds, working in harmony will create power in abundance”. Napoleon Hill – Think and Grow Rich.
Mastermind er heiti á hópi fólks sem hefur eitt að markmiði “Að styrkja og styðja við að þátttakendur hópsins nái markmiðum sínum og áætlunum”.

Dagskrá vinnustofu
14:00 Kynning á þátttakendum og tilgangi vinnustofu.  
14:30 Norðurlandið í Beinni
  Hvað viltu að átakið N66 gefi þinni ferðaþjónustu?
  Langtímamarkmið og sýnir skoðaðar.
15:00 Kaffihlé
15:20 Skammtímamarkmið þátttakenda skoðuð og skráð
  Aðgerðarplan sett upp.
16:30 Kaffihlé
16:40 Markaðssetning á samfélagsmiðlum.
 Möguleikar á markaðssetningu á samfélagsmiðlum skoðuð.  Hvar er markhópurinn þinn?
17:20 Leikreglur MASTERMIND hópa kynntar
 Mastermind hópar settir upp, næstu skref ákveðin.
18:00 Vinnustofu lýkur.