
Glærur frá stofnfundi flugklasans - 21.október 2011. Arnheiður Jóhannsdóttir
Glærur frá stofnfundi flugklasans - 21.október 2011. Guðný María Jóhannsdóttir, ISAVIA

Hvað er flugklasinn Air 66N?
Flugklasinn Air 66N er samstarfsverkefni fyrirtækja í ferðaþjónustu á Norðurlandi, sveitarfélaga, stofnana og annarra hagsmunaaðila í samfélaginu. Klasinn er rekinn af Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi.
Hvað á klasinn að gera?
Klasinn ætlar að fá reglulegt millilandaflug um Akureyrarflugvöll allt árið. Klasinn er því leiðandi í að markaðssetja og kynna Norðurland sem nýjan áfangastað allt árið um kring með það að markmiði að fjölga ferðamönnum á Norðurlandi og lengja dvöl þeirra á svæðinu.
Hverjir taka þátt?
Allir sem hafa áhuga á að vinna með okkur í amk 3 ár eru velkomnir með í klasann. Við viljum t.d. fá ferðaþjónustufyrirtæki, inn- og útflutningsfyrirtæki, upplýsingatæknifyrirtæki, markaðsfyrirtæki, hönnuði, tónlistarfólk, minjagripa- og fataframleiðendur. Einnig sveitarfélög, stoðkerfi atvinnulífsins, háskóla, rannsóknarstofnanir ofl.
Krafa er gerð um skuldbindingu þátttakenda til þess að taka virkan þátt í samstarfinu auk greiðslu árgjalds.
Hvers vegna?
Til mikils er að vinna fyrir alla. Sem dæmi má nefna er að flug tvisvar í viku allt árið með 148 sæta vél m.v. 68% nýtingu eru um 21.000 farþegar og skapa þeir yfir 120 heilsárs störf og um 2 milljarða króna veltu á Norðurlandi.
Hvenær byrjar klasinn?
Við byrjuðum fyrir ári síðan að undirbúa Air 66N. Nú í september 2011 fer samstarfið á fullt og því viljum við nú heyra frá öllum þeim sem vilja taka þátt!
Hafðu samband við Arnheiði Jóhannsdóttur verkefnisstjóra í síma 460 5733 eða á
arnheidur@nordurland.is.

14. júní 2011
Ráðstefna á vegum Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi um ímynd Norðurlands var haldin í Menningarhúsinu Hofi þann 28. febrúar 2011. Markmið ráðstefnunnar var að skoða, ræða og skilgreina ímynd Norðurlands og kalla eftir nýjum hugmyndum og áherslum í markaðssetningu svæðisins. Alls tóku um 200 manns allsstaðar að af landinu þátt í ráðstefnunni sem samanstóð af fyrirlestrum og vinnuhópum.
Ímynd Norðurlands er aðeins hægt að skapa með því að styðja við, bæta og viðhalda ákveðinni ímynd sem á sér djúpar rætur í huga fólks og er ekta. Ímyndin er því þegar til í huga ferðamannsins og greiningarvinnan snýst um að finna hana.
Þegar búið var að flokka og greina vinnu hópanna sem tóku þátt kom fram sú niðurstaða að þau orð sem lýstu kjarnanum í ímynd Norðurlands væru
kyrrð, orka og töfrar. Þessi hugtök samþætta gildi, menningu og eiginleika Norðurlands. Skilaboð sem miðlað er um svæðið varðandi afþreyingu, fólk, menningu og náttúru ættu að öll að taka mið af þessum hugtökum til að styðja við ímyndina. Leggja þarf áherslu á að ferðamaðurinn upplifi þetta hvar sem hann er á Norðurlandi og hvað sem hann tekur sér fyrir hendur.
Á ráðstefnunni tóku vinnuhóparnir einnig fyrir þær aðgerðir sem taldar væru mikilvægastar varðandi kynningu á ímynd Norðurlands. Niðurstöðurnar eru að þessar aðgerðir séu mikilvægastar:
1. Samvinna
2. Sameiginleg og öflug markaðssókn
3. Fræðsla, rannsóknir og eftirfylgni
Sérkenni Norðurlands, það sem aðgreinir það frá öðrum svæðum í heiminum og skapar aðdráttarafl kom einnig fram í niðurstöðum ráðstefnunnar. Segull svæðisins er Mývatnssvæðið og upplifun ferðamannsins á þessu svæði sem er einstakt í heiminum.
Niðurstöður um ímynd Norðurlands (PDF)
Flugklasi á Norðurlandi er samstarfsverkefni fyrirtækja í ferðaþjónustu á Norðurlandi, sveitarfélaga, stofnana og annarra hagsmunaaðila í samfélaginu. Klasinn er leiðandi í því átaki sem þarf til að markaðssetja og kynna Akureyrarflugvöll sem nýjan áfangastað fyrir millilandaflug allt árið um kring með það að markmiði að fjölga ferðamönnum á öllu Norðurlandi og lengja dvöl þeirra á svæðinu. Þátttaka í samstarfinu er öllum opin.
Nánari upplýsingar veitir Arnheiður Jóhannsdóttir verkefnisstjóri í síma 460 5733, arnheidur@nordurland.is.
Kynning á flugklasanum (PDF)
22.mars 2011
Við erum að vinna í úrvinnslu gagna frá ráðstefnunni. Það koma inn upplýsingar um leið og niðurstöðurnar liggja fyrir.
Ráðstefna á vegum Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi um „Ímynd Norðurlands“ var haldin í Menningarhúsinu Hofi þann 28. febrúar sl. Markmið ráðstefnunnar var að skoða, ræða og skilgreina ímynd Norðurlands og kalla eftir nýjum hugmyndum og áherslum í markaðssetningu svæðisins. Alls tóku um 200 manns, allsstaðar að af landinu, þátt í ráðstefnunni sem samanstóð af fyrirlestrum og vinnuhópum.
Á ráðstefnunni kom fram að svæðið hefur fjölmarga og fjölbreytta möguleika til að þróa alvöru vetrarferðaþjónustu fyrir erlenda sem og innlenda ferðamenn, en beint millilandaflug til Akureyrar er ein aðal forsenda þess að unnt sé að markaðssetja svæðið utan háannar. Að undanförnu hefur mikil vinna verið lögð í stefnumótun í ferðaþjónustu á Norðurlandi og er sú vinna enn í fullum gangi.
Innlegg erlendu fyrirlesaranna voru mjög áhugaverð og þar kom skýrt fram að „Glöggt er gests augað“.
Niðurstöður úr vinnuhópavinnu munu verða kynntar í mars við stofnun klasa um markaðssetningu Norðurlands erlendis og verða aðgengilegar hér á síðunni.
Hér fyrir neðan eru allar skyggnur fyrirlesaranna;
Clive Stacy (PDF 2.5 MB)
Kati Liikonen (PDF 391 KB)
Sigrún Björk Jakobsdóttir (PDF 734 KB)
Jón Ásbergsson (PDF 688 KB)
Simon Calder
John Strickland
Grein frá Simon Calder í The Independent.
Myndband frá Simon Calder.