Ferðaupplýsingar fyrir Norðurland

Á Norðurlandi eru starfræktar fjölmargar upplýsingamiðstöðvar sem dreifast yfir svæðið. Starfsfólk upplýsingamiðstöðvanna býr yfir sérþekkingu um viðkomandi svæði og engir eru betur fallnir til að leiðbeina ferðafólki. Hlutverk upplýsingamiðstöðva er að auðvelda fólki ferðalög eftir mætti og fræða ferðamenn um flest það sem hægt er að gera á viðkomandi stað.

Kjörið er að nýta sér upplýsingamiðstöðvarnar til að skipuleggja ferðalagið því góður undirbúningur getur verið lykillinn að vel heppnuðu ferðalagi.