Fjölbreytt gisting á Norðurlandi

Hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, íbúðir og fleira.

Á Norðurlandi ættu allir að geta fundið gistingu við sitt hæfi. Þar eru mörg hótel af ýmsum stærðum og fjöldi annarra gistihúsa og gististaða, t.d. heimavistir skóla, bændagisting bæði í sérhúsum og í herbergjum á heimilum bænda.
 
Tjaldsvæði eru fjölmörg en eins og í öðrum landshlutum misjöfn að gæðum. Á nokkrum stöðum hefur verið lögð mikil vinna í uppbyggingu góðra tjaldsvæða með fjölbreyttri þjónustu. Ágæt tjaldsvæði eru í öllum kaupstöðum og einnig á nokkrum öðrum stöðum. Má þar t.d. nefna Bakkaflöt í Skagafirði, Hrafnagil og Húsabrekku í nágrenni Akureyrar, Vaglaskóg og Vatnajökulsþjóðgarð (Ásbyrgi).