Námafjall og umhverfi er háhitasvæði. Þétt sprungubelti liggur yfir allt Námafjallssvæðið en meginuppstreymið er austan við fjallið og hefur það gengið síðustu ár undir nafninu Hverarönd. Á því svæði eru margir gufu- og leirhverir, en engir vatnshverir. Leirhverirnir eru stórir og áberandi en gufuhverirnir eru margir ekki annað en borholur sem búið er að hlaða grjóti yfir. Jarðvegur er ófrjór og gróðurlaus á háhitasvæðinu og mjög súr vegna áhrifa hveraloftsins og fellur út brennisteinn.