Í Mývatnssveit og nágrenni er fjöldi náttúruperla, t.d. Dimmuborgir, Höfði, Námafjall og margt fleira.
Eldgígar og eldfjöll móta landslag Mývatnssveitar og frægar eldstöðvar eru þar margar, t.d. Krafla, Hverfjall (Hverfell), Lúdentsborgir og Þrengslaborgir. Úr þeim hafa runnið mikil hraun, allt niður til sjávar við Skjálfanda. Gervigígar setja mikinn svip á vatnsbakka og eyjar Mývatns. Umhverfis Mývatn eru mörg svipmikil fjöll sem freista göngufólks t.d. Reykjahlíðarfjall, Búrfell, Bláfjall, Sellandafjall og Vindbelgur sem öll hafa myndast í gosi undir jökli.
Baðmenning í tengslum við jarðhita á sér langa sögu í Mývatnssveit en nýjasti kafli þeirrar sögu eru Jarðböðin við Mývatn.