Í Hverfelli er stór, hringlaga sprengigígur, um 140 m djúpur og um 1000 m í þvermál. Hverfell er í röð fegurstu og reglubundnustu sprengigígamyndana sem getur að líta á Íslandi og talið í röð þeirra stærstu sinnar tegundar á jörðinni. Telja má víst að gígurinn sé myndaður við sprengigos og er aldur þess áætlaður 2800-2900 ár.