Dimmuborgir eru sundurtættar hraunborgir með gróðri og kjarri. Í Dimmuborgum gefur að líta hvers konar furðumyndir, gatkletta og smáhella, sá frægasti er líklega Kirkjan, há og mikil hvelfing, opin í báða enda. Það er ekki síður mikil upplifun að fara í Dimmuborgir yfir vetrartímann og í desember er hægt að heimsækja jólasveinana sem búa þar.