Um 60 km frá Húsavík, í Vatnajökulsþjóðgarði.
85
641, Húsavík

Ásbyrgi er eitt helsta náttúruundur Íslands og er staðsett í Vatnajökulsþjóðgarði. Lagðir hafa verið göngustígar um svæðið og sett upp lítil upplýsingaskilti við þá. Í Ásbyrgi er mikið af fallegum gróðri og mikið fuglalíf. Það er upplifun fyrir alla fjölskylduna að virða fyrir sér tignarlega hamraveggi og njóta kyrrðarinnar. Það er ekki síður skemmtilegt að fara í Ásbyrgi á haustin þar sem fallegir haustlitirnir setja skemmtilegan svip á þetta náttúruundur.