Opnunartími

Allt árið
Söfn, Sýningar
Krókeyri
600, Akureyri
462-3600
897-0206

Iðnaðarsafnið var stofnað til að safna, varðveita og miðla arfleifð iðnaðar á Akureyri á síðustu öld; segja sögu verksmiðjanna og þeirra sem byggðu þær upp og unnu í þeim. Á safninu má finna vélar, tæki og verkfæri auk sýnishorna af þeim varningi sem framleiddur var á verksmiðjunum; Saxbauta, Santos kaffi, Duffys gallabuxur, Act mokkasíur, Skinnu mokkajakkar, Sólarsápur, skatthol, kaffibæti, Iðunnar skó, náttkjóla frá Íris, Flóru smjörlíki og fjöldi annarra hluta úr þinni fortíð. Öll fjölskyldan nýtur þess að heimsækja Iðnaðarsafnið.

OpnunartímiVirkir dagar:Laugardagar:Sunnudagar:
1. júní - 14. september:10:00-17:00
10:00-17:00
10:00-17:00
15. september - 31. maí: -
14:00-16:00
 -