Opnunartími

Allt árið
Íbúðir, Söfn, Sýningar, Handverk og hönnun, Kaffihús
Svalbarðsströnd
601, Akureyri
www.safnasafnid.is
461-4066
1
4
1

Safnasafnið annast fjölbreytt menningarstarf sem eitt af þremur mikilvægustu listasöfnum þjóðarinnar;  í vörslu þess eru um 4.200 verk, búin til af ýmsu tilefni á 40 ára tímabili, einnig þúsundir gripa sem settir eru upp í sérdeildum og notaðir á sýningum til að skerpa myndhugsun gesta og fá þá til að sjá hlutina í nýju og víðara samhengi.

Safnasafnið er í stöðugri endurskoðun og sjálfsgagnrýni og tekur á sig skarpari mynd með hverju árinu sem líður; sú hugsun er ríkjandi að það eigi að höfða til barnsins í manninum jafnt sem barnanna sjálfra, efla í leik og starfi þau gildi sem ráða við sköpun listar, s.s. hreina sýn, sjálfsprottna framsetningu, móttækileik, undrun, kímni, saklausa frásögn og tjáningu.

Safnasafnið er með 3 grunndeildir og setur upp 12-16 nýjar sýningar á hverju ári til að viðhalda áhuga almennings og kynna þá ríku arfleifð sem það hýsir. Í safninu er sumarkaffihús og lítil verslun, fjölbreytt fræðslubókasafn og 67 m2 Lista- og fræðimannsíbúð sem stendur ferðafólki til boða á sumrin.

Safnasafnið er með öfluga vefsíðu, www.safnasafnid.is, sem gegnir m.a. hlutverki gagnabanka um starfsemi safna almennt, og á tenglinum Vefsýningar er ýmislegt efni kynnt gestum til fróðleiks og skemmtunar. Gestgjafar eru Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðardóttir.

Nánari upplýsingar um opnunartíma og fleira á www.safnasafnid.is og www.folkart.is - eða í síma 4614066.

- eða í síma 4614066.