Náttúrugripasafn Fjallabyggðar á Ólafsfirðier fyrst og fremst fuglasafn og þykir mjög gott sem slíkt. Safnið býr yfir allflestum fuglategundum landsins, en einnig er þar að finna eggjasafn, vísi að plöntusafni, ísbjörn sem skotinn var á Grímseyjarsundi, sjaldgæfa fiska úr Ólafsfjarðarvatni eins og Hnúðlax og Röndung og margt fleira.
Náttúrugripasafni Fjallabyggðar á Ólafsfirði var komið upp árið 1993. Ari Albertsson fuglaáhugamaður stoppaði upp megnið af fuglum safnsins og sá um uppsetningu þess. Þá gáfu afkomendur Jóns Sigurjónssonar og Birnu Finnsdóttur frá Ytri-Á á Kleifum safninu eggja og fuglasafn þeirra hjóna.