Byggðasafnið Hvoll á Dalvík er í senn byggða-, náttúrugripa- og mannasafn. Þar eru ýmis áhöld og innanstokksmunir frá fyrri tíð og haganlega gerðir skrautmunir unnir af hagleiksfólki af svæðinu. Ánáttúrugripasafninu er fjöldi íslenskra fugla og spendýra, þar sem ísbjörninn vekur mesta athygli.
Minningarstofur eru um Jóhann Svarfdæling, sem var um tíma hæsti maður heims og Kristján Eldjárn forseta.
Árið 1934 reið jarðskjálfti yfir Dalvík (6,2 á Richter). Jarðskjálftanumeru gerð skil í sérstakri stofu safnsins.