Hólar í Hjaltadal eru einn merkasti sögu- og menningarstaður landsins og fjölsóttur ferðamannastaður. Sagan, helgi staðarins og náttúrufegurð leiða menn til Hóla.
Margt er að skoða á Hólum svo sem Hóladómkirkju, Auðunarstofu, Nýjabæ, fornleifauppgröft, byggingar skólans og náttúrufegurð. Kjósi fólk að fara í gönguferðir sem eru ekki lengri en svo að mögulegt sé að koma aftur gangandi heim til Hóla sama dag er um marga kosti að velja, bæði merktar leiðir og ómerktar. Hægt er að velja á milli stuttra göngutúra og lengri gönguferða, allt eftir óskum hvers og eins.
Á Hólum er boðið upp á gistingu og þar er fallegt tjaldsvæði. - Tveggja herbergja íbúðir með gistiplássi fyrir 2 - Herbergi með baði í smáhýsi- Herbergi án baðs í sumarhúsi (2-6 herbergja) Svefnpokagisting
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana. Hundar eru leyfðir á tjaldsvæðinu.