Upplifðu náttúruperlur hálendis Íslands

Norðurhálendið er einstakt og þar er að finna margar náttúruperlur, má þar nefna Kverkfjöll, Öskju, Herðabreið, Laugafell, Dettifoss, Hljóðaklettar og fleira. Það er tilvalið að reima á sig gönguskóna og upplifa náttúruna með styttri eða lengri gönguferðum sem hæfa hverjum og einum og liggja sumar leiðir til margra af sérstæðustu stöðum landsins.
Á norðurhálendinu er mikil víðátta. Heiðarnar sem leiða okkur inn til jöklanna eins og Arnarvatnsheiði inn að Langjökli, Eyvindarstaðaheiði inn að Hofsjökli og Ódáðahraunið inn að Vatnajökli eru flestar aðgengilegar sæmilega búnum bílum og opna nýja sýn fyrir ferðamenn á Norðurlandi. Fjallvegir eru almennt ekki opnaðir fyrr en komið er fram á sumar en ekki er síður fallegt að ferðast um hálendið í haustkyrrðinni. Um þetta svæði lykkjast fjallvegirnir Kjölur og Sprengisandur.  

Askja
Á norður hálendinu, í Ódáðahrauni
0
999, Hálendi
Askja er eldstöð, staðsett á hálendinu og er því aðeins aðgengileg yfir sumarmánuðina.  Í Öskju er Öskjuvatn en það er dýpsta stöðuvatn á ...
Herðubreið
Á norður hálendinu
0
999, Hálendi
Fjallið Herðubreið er svo tignarlegt að það gengur undir nafninu drottning íslenskra fjalla. Fjallið er svo reglulegt, hreint í línum og fagurskapað ...
Hveravellir
Afleggjari inná Kjalveg á norður hálendinu, 109 km frá Blönduósi
35
999, Hálendi
Hveravellir er jarðhitasvæði norðan undir Kjalhrauni, eitt af stærstu hverasvæðum landsins. Frægasti útilegumaður Íslands, Fjalla Eyvindur, dvaldist ...
Herðubreiðarlindir
Á norður hálendinu
0
999, Hálendi
Við rætur Herðubreiðar eru Herðubreiðarlindir sem eru af mörgum taldar einn fegursti bletturinn á öræfum landsins, einkum þó vegna útsýnis og ...
Kverkfjöll
Vatnajökull
0
999, Hálendi
Kverkfjöll erul megineldstöð í norðurbrún Vatnajökuls. Fjöllin eru nefnd eftir kverkinni sem skriðjökullinn Kverkjökull rennur niður úr. Í honum er ...
Arnarvatnsheiði
Á norður hálendinu
704
999, Hálendi
Á Arnarvatnsheiði er óteljandi fjöldi vatna og er góð veiði í mörgum þeirra.
Laugafell
85 km frá Akureyri
0
999, Hálendi
Laugafell (879 m y.s.) og Laugafellshnjúkur (997 m y.s.) nefnast tvö fjöll úr móbergi, norðaustur af Hofsjökli. Í ás norðvestur frá Laugafelli eru ...
Möðrudalur
162 km frá Akureyri
901
999, Hálendi
Möðrudalur liggur hæst bæja á Íslandi, 469 m.y.s. Ein landmesta jörð landsins. Þar hefur meira og minna verið í byggð frá fyrstu öldum ...