Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

Ferðaskipuleggjendur, Hótel, Gönguferðir, Vetrar afþreying, Jeppa- og jöklaferðir , Veitingahús
Skútustaðir
660, Mývatn
www.myvatn.is
464-4164
464-4364
34
64

Sel Hótel Mývatn hefur 35 herbergi og eru þau öll með sér baðherbergi. Á hverju herbergi er sími, útvarp og sjónvarp.  Einnig er möguleiki á háhraða tölvutengingu inn á herbergin.  Allar innréttingar á herbergjunum eru ú gegnheilum hahonívið og er leitast við að skapa notalegt viðmót gagnvart gestum hótelsins.  Mikilfenglegt útsýni er frá herbergjunum, yfir Skútustaðagíga og út á Mývatn.

Hótelið er vel búið til að taka á móti allskonar fyrirtækja- og skemmtiferðum, bæði varðandi aðbúnað á hótelinu og einnig aðra afþreyingu á Mývatnssvæðinu.  Ennfremur er hótelið einstaklega vel staðsett til að sinna ráðstefnum og fundum fyrir stærri sem smærri hópa.

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.