Opnunartími

Allt árið
Ferðaskrifstofur, Ferðaskipuleggjendur, Vetrar afþreying, Dagsferðir, Útsýnisflug, Hestaferðir, Bátaferðir, Hvalaskoðun, Jeppa- og jöklaferðir
Brekkugata 5
P.O.Box 336
602, Akureyri
www.nonnitravel.is
461-1841
461-1843

Ferðaskrifstofan Nonni ehf. er stofnuð árið 1989 af Helenu Dejak sem fædd er og uppalin í Slóveníu, en hefur búið á Íslandi síðustu 34 ár.

Aðsetur ferðaskrifstofunnar hefur alltaf verið á Akureyri og hefur aðaláhersla frá byrjun verið lögð á móttöku erlenda gesta á Íslandi og skipulagningu ferða innanlands, en síðar bættust við ferðir til Grænlands og Færeyja. Ferðaskrifstofan Nonni býður eigin ferðir auk úrvals annarra ferða og ýmsa afþreyingu.  Skrifstofan er sérhæfð í ráðgjöf og skipulagningu sérsniðinna ferða fyrir einstaklinga og hópa. Einnig hefur skrifstofan mikla reynslu í ráðstefnuhaldi og skipulagningu stærri funda.

Á Grænlandi býður skrifstofan ferðir til austur- og vesturstrandarinnar.  Þær ferðir geta verið frá 3 dögum upp í 3 vikur.  Í mars, apríl og maí er m.a. boðið upp á hundasleðaferðir, en á sumrin eru kajak-, báts-, gönguferðir í boði.

Vegna persónulegra tengsla við Slóveníu hefur Ferðaskrifstofan Nonni annast ferðir þangað fyrir sérhópa   Um er að ræða gönguferðir, "spa"-ferðir, ofl.  Þar sem tveir starfsmannanna eru virkir í kórastarfi, skipuleggur skrifstofan einnig ferðir fyrir kóra, fyrst og fremst til Slóveníu, enn einnig til annarra landa.

Ferð:Brottför:Lengd:
Grímsey - flug/ferja
9 klst.
Arctic Circle Flight - staðfestingarskjal innifalið
2,5 klst.
Hestaferð frá Grýtubakka
Samkvæmt samkomulagi
Askja Super Jepp
júlí - september
11-12 klst.
Dettifoss Super Jeep
júní - september
6-7 klst.
Gullfoss - Geysir - Þingvellir
allt árið
10 klst.
Landmannalaugar og Hekla
janúar - október
10 klst.
Sjáið einnig heimasíðu fyrirtækisins vegna frekari upplýsinga um ferðir.