Ferðaskipuleggjendur, Gönguferðir, Vetrar afþreying, Flúðasiglingar, Köfun, Dagsferðir, Hjólaferðir, Vélsleða- og fjórhjólaferðir, Hestaferðir, Hópefli, Hellaskoðun, Kajakferðir, Hvalaskoðun, Jeppa- og jöklaferðir
Hafgrímsstaðir
560, Varmahlíð
Arctic Rafting er íslenskt ævintýra og afþreyinga fyrirtæki sem leggur áherslu á vistvæna ferðamennsku í einstakri náttúru Íslands.
Ef
þig langar til að sjá Ísland í nýju ljósi þá getur Arctic Rafting gert
fríið þitt á Íslandi að ógleymanlegu ævintýri. Við bjóðum upp á ferðir
um allt land en þó sérstaklega á suðurlandi og í Skagafirði.
Við bjóðum upp á flúðasiglingar á mörgum skemmtilegustu ám Íslands. Á
suðurlandi bjóðum við upp á daglegar siglingar á gúmmíbát og kanó á
Hvítá. Við höfum nú opnað bækistöðvar í Skagafirði og erum nú með
reglulegar flúðasiglingar í Jökulsá Vestari og Austari. Einnig bjóðum
við upp á sjókayakferðir, hellaferðir, snorkeling, jökulgöngur,
jeppaferðir og margt margt fleira.
Geysilega vinsælt hefur verið að snorkla og kafa í hinni heimsfrægu
Silfru á Þingvöllum og ganga í Reykjadal og baða sig í heitum læk.
Einnig hefur jöklaganga og ísklifur á Sólheimajökli slegið í gegn en sú
ferð er frábær kynning á íslenskri jöklamennsku og fræðsla um það
hvernig jöklarnir móta landið.
Einnig bjóðum við upp á ýmsar hvataferðir á öllu landinu. Við setjum
saman skíðaferðir, snjóbrettaferðir, gönguferðir, kayakferðir,
köfunarferðir, flúðasiglingar, klifur, brimbrettaferðir, íslenskar
alpaferðir og margt fleira.
Flúðasiglingar: Á Hvítá á Suðurlandi. Á Vestari Jökulsá og Austari Jökulsá í Skagafirði á Norðurlandi.
Kanósiglingar: Á Hvítá á Suðurlandi.
Sjókayak:
Á Hvalfirði á Suðurlandi, Breiðafirði á Vesturlandi, Skutulsfirði,
Seyðisfirði, Hestfirði og Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi á Vestfjörðum, og
Langasjó á hálendi Íslands.
Jöklaganga: Á Snæfellsjökli á
Vesturlandi, Eyjafjallajökli og Sólheimajökli á Suðurlandi, og
Fallsjökli og Virkisjökli í Skaftafelli á Suð-Austurlandi.
Ísklifur: Á Sólheimajökli á Suðurlandi og Virkisjökli í Skaftafelli á Suð-Austurlandi.
Köfun:
Í gjánni Silfru á Þingvöllum á Suðurlandi, að El Grillo skipsflakinu á
Seyðisfirði á Austurlandi og að heitu uppsprettunni í Strýtunum í
Eyjafirði á Norðurlandi.
Snorkeling: Í gjánni Silfru á Þingvöllum á Suðurlandi.
Hellaferðir: Í Gjábakkahelli og Leiðarenda á Suðurlandi, og Lofthelli við Mývant á Norðurlandi.
Göngu- og fjallaferðir:
Á Esjuna og Reykjadal á Suðurlandi, Laugaveginn, Landmannalaugar,
Þórsmörk, Fimmvörðuháls og Fjallabak á Hálendinu, Heklu og
Eyjafjallajökul á Suðurlandi, Hornstrandir og Jökulfirði á Vestfjörðum,
Borgarfjörð Eystri á Austurlandi, og Snæfellsjökul á Vesturlandi,
Hvannadalshnúk, Hrútfjallstinda, Sveinstind, Þverártindsegg og Þumal í
Skaftafelli á Suð-Austurlandi.
Fjórhjólaferðir: Á Hellisheiði á Suðurlandi.
Snjósleðaferðir: Á Langjökli og Mýrdalsjökli á Suðurlandi og Snæfellsjökli á Vesturlandi.
Jeppaferðir:
Sumar og vetrar dagsferðir og leiðangrar um hálendið, jökla, Gullna
hringinn, Landmannalaugar, Þórsmörk, Suðurströndina og á fleiri staði.
“Self-drive” fjallajeppaferðir:
Sumar og vetrar dagsferðir og leiðangrar um hálendið, jökla, Gullna
hringinn, Landmannalaugar, Þórsmörk, Suðurströndina og á fleiri staði.
Klettaklifur: Í Valshamar í Hvalfirði á Suðurlandi og á Hnappavöllum í grennd við Skaftafell á Suð-Austurlandi.
Brimbrettaferðir: Dagsferðir og lengri ferðir á Norður- og Suðurlandi.
Hjólaferðir: Í Reykjavík, Heiðmörk og Reykjadal á Suðurlandi, og Skaftafelli á Suð-Austurlandi.
Hvalaskoðun: Frá Reykjavík.
Hestaferðir: Á Suðurlandi.
Samsettar ferðir: Samblanda mismunandi afþreyingar í dagsferðum og lengri ferðum.
Skólaferðir: Á Norður-, Suð-Austur og Suðurlandi.
Starfsmannaferðir: Á Norður-, Suð-Austur og Suðurlandi.
Á Norður-, Suð-Austur og Suðurlandi.