Fjallasýn er ferðaþjónustufyrirtæki á Norðausturlandi með mikla og langa reynslu í þjónustu við ferðafólk, sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir, starfsmannafélög og ýmsa aðra hópa og aðila.
Fjallasýn er með úrval skoðunarferða í boði fyrir hópa en leggur auk þess áherslu á útfæra ferðapakka eftir óskum viðskiptavina og árstíðatengdum aðstæðum.
Norðausturland er áhugavert fyrir göngufólk og Fjallasýn býður upp á gönguferðir auk þjónustu við gönguhópa.
Fjallasýn er aðili að SAF og er með öll tilskilin leyfi til reksturs hópferðaþjónustu og ferðaskrifstofu.
Hópferðaþjónusta og sérferðir. Bílar af ýmsum stærðum og gerðum fyrir margvísleg tilefni. Skipulag skoðunarferða og alferða. Leiðsögn um Norðausturland. Þematengd upplifun t.d. gönguferðir, fuglaskoðun, jarðfræði o.sv.frv.
Vinsamlegast hafið samband fyrir bókanir og frekari upplýsingar.