Í Varmahlíð, í hjarta Skagafjarðar bjóða Ævintýraferðir upp á gistingu í sumarhúsum / heilsárshúsum af mismunandi gerðum allt frá 35 fermetra "stúdío" húsum upp í 50 fermetra hús með herbergjum og svefnlofti.Boðið er upp á gistingu bæði í uppbúnum rúmum og svefnpokapláss eina nótt eða fleiri í senn. Öll húsin eru með eldunaraðstöðu.Húsin standa í hring um upphlaðinn heitan pott sem myndar einskonar torg í miðri húsþyrpingunni.Baðaðstaðan í pottinum gefur möguleika á slökun og hvíld fyrir gesti þorpsins eftir viðburðaríkan og spennandi dag í Skagafirði. Flúðasiglingar í vestari og eystri Jökulsá og Blöndu. Einnig í boði litbolti - paintball. Vinsamlegast hafið samband vegna ferkari upplýsinga.